Ritstífla

Wednesday, November 16, 2005

Gömul gæra

Undanfarna daga hef ég eytt miklum tíma láréttur þar sem ég hef ekki getað stundað hefðbundnar íþróttir því mitt val á íþróttum hefur verið 14-15 klst. í viku þar sem báðar lappirnar þarf til (fyrir utan auðvitað hjólreiðar til og frá íþróttahúsum, betra að hafa báðar lappir í lagi) :)

Það hefur að vísu ekki gengið upp að hafa löppina alveg beina en ég reddaði mér gamalli gæru til að hafa í rúminu svo nú er veran í rúminu miklu þægilegri, eini gallin er sá að gæran er gömul og lyktar eftir því en hún gerir sitt gagn nema þegar hún á það til að breiða úr sér þegar ég hef í ógáti sparkað í hana því þá réttist úr löppinni og það getur verið talsverð pína samfara því að vakna upp með fótinn beinann.

Annars ætti maður ekki að tala illa um gæruna, hún er nú eiginlega hið besta skinn greyið :)